Við gerum miklar kröfur til samstarfsaðila okkar og teljum að viðskiptavinir okkar fái betri gæði og þjónustu ef viðurkenndur aðili annast björgun ökutækja vegna tjóna. Sjóvá annast björgun ökutækja í samráði við viðbragðsaðila en hafir þú áhuga á að notast við ákveðinn aðila biðjum við þig að hafa samband við okkur.